Komdu austur, njóttu tónleika í Frystihúsinu og gerðu vel við þig með notalegri dvöl á Hótel Breiðdalsvík.
Tónleikahelgi á Breiðdalsvík
Nýdönsk kemur til Breiðdalsvíkur föstudaginn 10. október og við bjóðum sérstakt gistitilboð fyrir tónleikagesti.
Gerðu vel við þig og njóttu helgarinnar hjá okkur. Slakaðu á í notalegu umhverfi með arni, útisvæði með heitum potti, köldum potti og finnskri saunu, góðum mat og fallegri náttúru allt í kring.
Hvort sem þú vilt koma eina nótt eða gera meira úr ferðinni og vera lengur, þá höfum við sett saman einfalt og þægilegt tilboð fyrir tónleikahelgina.
Bæta við
Um tónleikana
Eins og fullkomið farartæki brunar sveitin áfram á vegum tónlistarinnar og sér ekki fyrir endann á ævintýrinu endalausa. Nú bætist Breiðdalsvík við tónleikaferðalagið með tónleikum í Frystihúsinu þann 10. október.
Á síðasta ári sendi hljómsveitin frá sér plötuna „Í raunheimum“ sem innihélt meðal annars lag ársins. Á tónleikunum mun Nýdönsk leika sín þekktustu lög ásamt efni af nýjustu plötunni.
Almenn miðasala hefst 10. apríl kl. 10.
Miðar á tónleikana
Miði á tónleikana er ekki innifalinn í gistitilboðinu og þarf að kaupa sérstaklega.
Bókaðu pakkann þinn
Veldu þann pakka sem hentar þér og bókaðu beint á örfáum sekúndum.
Ef þú vilt bæta við kvöldverði eða bjórsmakki, geturðu skrifað það í athugasemd við bókun.
Gerðu meira úr tónleikakvöldinu og njóttu þess að stoppa aðeins lengur á Breiðdalsvík. Tónleikar, notaleg gisting, góður morgunverður og afslöppun í fallegu umhverfi á Austurlandi.