Bláfell
Ekta austfirsk matargerð úr ferskum hráefnum
Veitingastaðurinn Bláfell er stoltur af því að bjóða upp á ekta íslenska rétti, matreidda með ferskum hráefnum sem sótt eru í nærumhverfi hótelsins.
Kjötið kemur frá nærliggjandi bæjum, fiskurinn frá framleiðendum í Fjarðabyggð og grænmetið og kartöflur ofan af Héraði sem og frá Hornafirði.
Bláfell er opinn fyrir bæði gesti hótelsins og aðra. Ef þú átt bara leið hjá er tilvalið að koma við í rjúkandi ferskt kaffi og kökusneið.

Dagurinn byrjar vel með hlaðborði þar sem ferskleikinn er í fyrirrúmi. Nýbakað brauð, heimalagað bakkelsi, austfirskt álegg, ostar, skyr, ávextir og nýlagað kaffi. Að sjálfsögðu er lýsi á boðstólum, ekta íslensk hefð sem kemur þér af stað fyrir daginn í Breiðdal.
Vel nærð leggur þú af stað í ævintýri dagsins, hvort sem það er gönguferð að Flögufossi eða rólegur morgunn við fjörðinn.
Velkomin í Bláfell
Hádegisverður fyrir hópa
Við bjóðum upp á sérstakan hádegisverð fyrir hópa, fyrirfram bókaður og sniðinn að ykkar þörfum.
Tilvalið fyrir starfsmannahópa, ráðstefnur, ferðahópa eða fjölskylduveislur. Hafðu samband með nokkurra daga fyrirvara og við sníðum matseðilinn að ykkur.
Bóka fyrir hóp →Sjá matseðilinn
Skoðaðu hvað er á boðstólum hjá Bláfell, morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
Skoða matseðil →