Sjálfbærni

Sjálfbærni, umhverfis- & starfsmannastefna

Ábyrg ferðaþjónusta & öryggismál

„Metnaður, gleði og framúrskarandi þjónusta í sátt við umhverfið.“

Við gerð þessarar stefnu var horft til gilda Hótels Breiðdalsvík sem eru: metnaður, gleði og framúrskarandi þjónusta í sátt við umhverfið.

Hótel Breiðdalsvík leggur mikla áherslu á að stunda ábyrga starfsemi í hvívetna. Það er mikil ábyrgð fólgin í því að stunda atvinnustarfsemi, ekki einungis gagnvart eigendum fyrirtækisins heldur einnig gagnvart starfsfólki, gestunum okkar, samfélaginu og ekki síst umhverfinu. Þetta eru fjórar megin stoðir ábyrgrar ferðaþjónustu.

Hótel Breiðdalsvík hefur sett sér skýra stefnu þegar kemur að sjálfbærni með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi.

Vottanir & viðurkenningar

Áður vottuð

Vakinn

Hótel Breiðdalsvík var með Vakann-vottun í gæða- og umhverfismálum, opinbera gæða- og umhverfiskerfi íslenskrar ferðaþjónustu.

Í ferli

Green Key

Við erum í ferli að hljóta Green Key, alþjóðlega vottun í umhverfisrekstri ferðaþjónustufyrirtækja, sem nær til 60+ landa.

Hlotið 2022

Hvatningarverðlaun

Hótelið hlaut Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2022, afhent af Forseta Íslands á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu.

Þrjár stoðir sjálfbærni

Þrjár megin stoðir sjálfbærni eru umhverfið, efnahagurinn og samfélagið. Sjálfbærni er hugtak sem við sem jarðarbúar þurfum að temja okkur meira í gjörðum hversdagsins. Mikilvægi ábyrgðar á gjörðum okkar hefur aldrei verið meiri gagnvart náttúrunni og umhverfi okkar. Loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa aukist mikið á undanförnum árum og nú eru aðgerðir til að sporna við losun gróðurhúsalofttegunda mikilvægari en nokkru sinni fyrr.

Sjálfbærni gengur út á að nýta það sem í boði er án þess að það hafi skaðleg áhrif á jörðina. Fyrirtæki, stofnanir og aðrar skipulagsheildir axli ábyrgð á gjörðum sínum og hafi uppbyggileg áhrif á umhverfið, samfélagið og stjórnarhætti. Ábyrgðin gengur m.a. út á að koma fram með þeim hætti að næsta kynslóð geti einnig notið góðs af sameiginlegum auðlindum og samfélaginu.

Umhverfið

Vernd náttúrunnar með ábyrgri nýtingu orku, vatns og efna.

Efnahagur

Skynsamleg nýting hráefna sem er bæði hagkvæm og umhverfisvæn.

Samfélag

Stuðningur við heimabyggð, ráðningar úr nærumhverfi og verslun við staðbundin fyrirtæki.

Frá línulegu hagkerfi til hringrásar

Núverandi línuleg auðlindanotkun miðar að því að framleiða, kaupa, nota, henda, kaupa nýtt, sem er ósjálfbær nálgun. Á meðan hringrásarhagkerfið miðar að því að hanna í burtu allan úrgang, mengun og halda hráefni og vörum í notkun og endurnýja þannig vistkerfin, með öðrum orðum leitast við að halda hráefni frá því að verða úrgangur og halda því lengur inn í virðiskeðjunni.

Fiðrildamódelið er góð leið til að útskýra hvernig hringrásarhagkerfið virkar. Miðja myndarinnar táknar hið hefðbundna línulega módel þar sem auðlindir eru nýttar til að framleiða vöru, hún flutt, seld og að lokum fargað, oftar en ekki á ruslahaugana. Módelið skiptist í tvennt: lífrænan hluta og ólífrænan hluta.

Fiðrildamódelið - hringrásarhagkerfi
Fiðrildamódelið, sjónræn útskýring á hringrásarhagkerfinu (Ellen MacArthur Foundation).

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Sameinuðu þjóðirnar settu fram sautján markmið árið 2015 sem þau kalla heimsmarkmið um sjálfbæra þróun, sem gilda frá 2016–2030. Þessi sautján markmið eru svo með 169 undirmarkmið sem taka bæði til innanlandsmála sem og alþjóðasamstarfs.

Markmiðin fjalla um jafnvægi milli hinna efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu stoða sjálfbærrar þróunar. Meginefni markmiðanna eru fimm: mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf, þar sem aðalinntakið er að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hótel Breiðdalsvík vinnur sérstaklega með heimsmarkmið nr. 6, 7, 9, 12, 13, 14 og 15, sem snerta hreint vatn, hreina orku, ábyrga neyslu, loftslagsaðgerðir og verndun lífríkis á landi og sjó.

Samfélagsábyrgð, starfsfólk & efnahagur

Hótel Breiðdalsvík leggur áherslu á að laða að sér hæft og gott starfsfólk sem býr yfir ákveðnum eiginleikum sem falla vel að markmiðum, starfsemi og stefnum fyrirtækisins. Hótel Breiðdalsvík hefur það að leiðarljósi að búa starfsfólki góðan vinnustað með metnaðarfullri starfsmannastefnu, og verða þannig eftirsóttur vinnustaður. Starfsmenn vita hvar áherslan liggur innan fyrirtækisins, til hvers er ætlast af þeim og stjórnendum þeirra.

Starfsfólk leggur sig fram í að vinna sem ein heild með því að styðja hvert annað. Lögð er áhersla á jákvæðan og góðan starfsanda milli starfsfólks og að það sýni hvert öðru virðingu, traust, trúnað og vinsemd. Allir geta eitthvað en enginn getur allt. Góður starfsandi og að starfsmenn vinni sem ein heild er mikilvægur þáttur í því að geta veitt góða þjónustu.

Starfsfólk er mikilvægasta auðlind hótelsins. Áhersla er lögð á jafnrétti, réttindi starfsfólks eru virt og komið er fram við starfsfólk af virðingu. Mismunun, einelti eða hvers konar áreitni eru ekki liðin, hvorki af hendi samstarfsfólks né viðskiptavina. Stutt er við starfsfólk í heilsueflingu og heilbrigði. Allir starfsmenn gegna mikilvægu hlutverki í starfi sínu og er hvatt til ábyrgðar og frumkvæðis.

Skýr afstaða í jafnréttismálum er mikilvæg og er partur af samfélagslegri ábyrgð hótelsins. Mikill ávinningur er af því að styðja starfsfólk til heilsueflingar, það hefur sýnt sig meðal annars í færri veikindadögum. Starfsánægja eykst hjá fólki sem finnur fyrir trausti frá yfirmönnum og að rými sé til ábyrgðar og frumkvæðis.

Vanda ráðningarferli og þjálfa nýliða á árangursríkan hátt

Lögð er áhersla á að ráða inn starfsfólk úr heimabyggð þegar þess gefst kostur. Ráðningarferlið er vandað þar sem farið er eftir hæfni, menntun, reynslu og viðhorfum. Jafnréttis er gætt við ráðningar. Vel er tekið á móti nýjum starfsmönnum og er þeim kynnt almenn starfsemi og stefnur hótelsins.

Með því að ráða fólk úr heimabyggð gefst tækifæri á að styrkja atvinnuuppbyggingu á svæðinu, auk þess sem gott er að hafa góða þekkingu heimafólks á svæðinu og staðháttum. Til að hafa ráðningarferlið faglegt og hlutlaust, er stuðst við stöðluð starfsviðtöl og svarað öllum umsækjendum þegar búið er að ganga frá ráðningu.

Öryggismál

Starfsmönnum er kynnt mikilvægi öryggismála og jafnframt lagt að þeim að fylgja þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra. Áhersla er lögð á að starfsmenn upplýsi ferðamenn um öryggismál og mögulegar hættur í umhverfinu, hvort sem er á hótelinu eða í nágrenninu.

Allir starfsmenn skulu fá kynningu og fræðslu á öryggismálum hótelsins, svo sem varðandi mögulegar hættur, brunavarnir, neyðarútganga, hjartastuðtæki og annað. Allir lykilstarfsmenn skulu þjálfaðir í skyndihjálp.

Þjónustustig & viðskiptavinir

Viðskiptavinum er veitt framúrskarandi þjónusta þar sem áhersla er lögð á að vera ávallt til staðar fyrir þá. Tekið er vel á móti öllum viðskiptavinum með þægilegu viðmóti. Mikilvægt er að starfsfólk þekki svæðið og umhverfið vel og geti leiðbeint viðskiptavinum varðandi afþreyingu, útivist og annað á svæðinu.

Hótelið hefur fengið góða umsögn fyrir þjónustu og gott viðmót starfsmanna. Mikilvægt er að halda í og byggja áfram á þeim styrkleika.

Stuðningur við nærsamfélagið

Hótel Breiðdalsvík leggur ríka áherslu á að styðja við samfélagið og nærumhverfið með því að styðja við ýmiskonar félagsstarf. Hótel Breiðdalsvík verslar við fyrirtæki í heimabyggð og nærumhverfi eins og hægt er hverju sinni.

Umhverfisstefna

„Metnaður, gleði og framúrskarandi þjónusta í sátt við umhverfið.“

Samfélagsleg ábyrgð felst meðal annars í því að fyrirtæki axli ábyrgð á þeim áhrifum sem þau hafa á fólk og umhverfið. Auk heldur byggir framtíð hótelsins að miklu leyti á hreinni og ósnortinni náttúru þar sem nærumhverfið spilar lykilhlutverk í þjónustu þess. Kannanir sýna að flestir sem ferðast til Íslands koma náttúrunnar vegna og því er til mikils að vinna fyrir hótel að stunda umhverfisvæna ferðamennsku.

Með virkri umhverfisstefnu er Hótel Breiðdalsvík ekki einungis að hafa jákvæð áhrif á umhverfið heldur getur einnig í því falist mikið rekstrarhagræði í starfseminni sjálfri, til dæmis í formi minni sóunar og orkusparnaðar.

Hótel Breiðdalsvík er meðvitað um að starfsemi þess hefur áhrif á umhverfið og reynir að halda neikvæðum áhrifum í lágmarki. Hótelið leggur áherslu á að vernda náttúruauðlindir með ábyrgri nýtingu orku, vatns og efna á sama tíma og viðskiptavinum er tryggð framúrskarandi þjónusta. Hótelið vinnur stöðugt að frekari umbótum í rekstri og þjónustu til að bæta frammistöðu í umhverfismálum.

Halda nánasta umhverfi aðlaðandi og ganga vel um auðlindir

Áhersla er lögð á verndun náttúrunnar um leið og viðskiptavinum er tryggður aðgangur að henni. Auðlindir eru nýttar á þann hátt að um sjálfbæra og ábyrga nýtingu er að ræða. Hótelið er í góðu samstarfi við nærsamfélagið. Aðlaðandi nánasta umhverfi og ábyrg nýting auðlinda skiptir miklu máli til að tryggja rekstrargrundvöll hótelsins og auka fjölda gesta.

Draga úr úrgangi og auka endurvinnslu

Aðstaða við flokkun á úrgangi er mjög aðgengileg fyrir starfsmenn og viðskiptavini.

  • Pappír, plast, gler og spilliefni er flokkað sem sér sorp.
  • Matarleifar og annar lífrænn úrgangur er flokkað sérstaklega.
  • Ekki er boðið upp á einnota- eða innpakkaðar vörur ef hægt er að komast hjá því; umbúðanotkun er haldið í lágmarki.
  • Starfsmenn og viðskiptavinir fá hvatningu og fræðslu um skynsamlega nýtingu hráefna.
  • Pappírsnotkun til útprentunar er haldið í lágmarki og takmarka skal útsendingar á óþarfa tölvupóstum.
  • Sér sorp og spilliefni er fargað á til þess bærum sorpstöðvum.
Mynd kemur fljótlega.
Lífrænn úrgangur er flokkaður og fer í moltuvél hótelsins.

Endurnýting og staðbundin hráefni

Hótel Breiðdalsvík leggur ríka áherslu á endurnýtingu hráefna með því að gefa þeim annað líf í öðrum búningi. Í þeim tilfellum þegar hætt er að nota hluti, þá eru hlutir gefnir áfram til þeirra sem geta notað þá. Lögð er áhersla á nýtingu auðlinda í nágrenninu til innréttinga, meðal annars íslenskt timbur frá Hallormsstaðaskógi og grjót úr fjörunni til að mynda.

Velja vörur og þjónustu sem taka tillit til umhverfisins

  • Umhverfisvottaðar vörur eru teknar fram yfir aðrar.
  • Viðskiptavinum er boðið upp á pappírslaus viðskipti.
  • Allt efni er notað sparlega.
  • Sápuskammtarar eru notaðir við handlaug og sturtu, engar einnota umbúðir.
  • Áhersla er á að nota staðbundin hráefni og skynsöm innkaup.

Fylgja lögum og reglugerðum um umhverfismál, að lágmarki

Öll starfsemi er í samræmi við lög og reglur um umhverfismál. Reynt er að ganga lengra en lög og reglur segja til um. Það er hótelinu til framdráttar að viðskiptavinir og nærumhverfið viti að hótelið gengur lengra en reglur segja til um.

Draga markvisst úr orku- og vatnsnotkun

  • Starfsmenn eru meðvitaðir um að nýta sparlega orku og vatn í starfsemi hótelsins og hvetja viðskiptavini til að gera slíkt hið sama.
  • Handklæði eru endurnýtt í samræmi við óskir viðskiptavina.
  • Varmadælur eru notaðar til að spara rafmagn.
  • Við endurnýjun eða viðhald eru settar upp LED- eða sparnaðarperur og valin tæki sem eru orkunýtin.

Mikilvægt er að starfsfólk fái fræðslu og þjálfun í umhverfisvernd og umhverfisstefnu hótelsins. Með því er umhverfisvitund þeirra efld, sem er hvatning til aukins árangurs. Þannig veit starfsfólk til hvers er ætlast af þeim og getur hjálpað til við að draga úr neikvæðum áhrifum af starfsemi hótelsins á umhverfið ásamt því að stuðla að stöðugum umbótum.

Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2022

Forseti Íslands afhenti verðlaunin í Grósku 13. desember 2022.

Hvatningarverðlaun ferðaþjónustu 2022 - Hótel Breiðdalsvík Verðlaunaafhending - Hótel Breiðdalsvík Hótel Breiðdalsvík - Hvatningarverðlaun

„Hvatningarverðlaunin að þessu sinni fær Hótel Breiðdalsvík fyrir að taka á þessu stóra og mikilvæga verkefni á skipulagðan og markvissan hátt síðastliðið ár. Sjálfbærnistefna hótelsins er afar vel ígrunduð. Hringrásarhagkerfið er haft að leiðarljósi og markvisst unnið með Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna við gerð sjálfbærnistefnunnar.“

, Dómnefnd Hvatningarverðlauna Ábyrgrar ferðaþjónustu, 2022

Lesa fréttina á SAF.is →

Þú spilar líka rullu

Sem gestur okkar getur þú lagt þitt af mörkum, endurnýta handklæði, slökkva ljós, flokka sorp og styðja staðbundnar vörur. Saman getum við gert dvölina þína bæði ánægjulega og umhverfisvæna.

Hafðu samband →
💬