Draumadvöl

Hin fullkomna ferð er aðeins smelli frá. Bókaðu núna og byrjaðu ævintýrið þitt!

Gistingin

Þægileg dvöl í fallegu umhverfi. Hótel Breiðdalsvík býður upp á þægilega gistingu í 37 björtum og rúmgóðum herbergjum sem öll eru með sér baðherbergi. Við bjóðum upp á eftirfarandi herbergja tegundir: standard herbergi, Bjálka herbergi, Juniour svítu, þriggja manna herbergi og fjölskyldu herbergi.

Aðstaðan

Á Hótel Breiðdalsvík er fyrirmyndar aðstaða en þar má meðal annars nefna frí þráðlaus nettenging, næg bílastæði, veitingastaður, notaleg setustofa og sauna í finnskum stíl.

DSC06860-Edit

Setustofan

Gestir hótelsins geta notið þess að slaka á afslöppuðu umhverfi setustofunnar okkar, með snarkið í arninum í bakgrunninum, og líta í bók úr veglegu bókasafni okkar eða njóta drykkja af barnum.

DSC06291

Finnsk Sauna

Eftir langan dag er ekkert betra til að slaka á þreyttum vöfðum en að njóta þess að fara í finnska sauna, sem allir gestir hafa aðgang að. Opin alla daga frá 17:00 – 22:00 eða eftir óskum.

_DSC8279

Veitingastaður

Við erum stolt af því að bjóða upp á íslenska matargerð eins og hún gerist best, matreidda með ferskum hráefnum úr nærumhverfi okkar. Við bjóðum einnig upp á afbragðsgóðan hefðbundin hádegismat fyrir einstaklinga og hópa. Ef þú átt bara leið hjá er tilvalið að koma við í rjúkandi ferkst kaffi og kökusneið.

IMG_2622

Viðburðir, fundir og ráðstefnur

Verið velkomin á Hótel Breiðdalsvík, frábæran áfangastað fyrir komandi viðburð eða fund. Hótelið okkar er vel útbúið til að koma til móts við margs konar samkomur, allt frá ráðstefnum og fundum til veislna og hátíðahalda. Uppgötvaðu einstaka ráðstefnuherbergisaðstöðu okkar og gerðu viðburðinn þinn að frábærum árangri.

Veitingastaður

Við erum stolt af því að bjóða upp á íslenska matargerð eins og hún gerist best, matreidda með ferskum hráefnum úr nærumhverfi okkar. Við bjóðum einnig upp á afbragðsgóðan hefðbundin hádegismat fyrir einstaklinga og hópa. Ef þú átt bara leið hjá er tilvalið að koma við í rjúkandi ferkst kaffi og kökusneið.

Veitingastaðurinn Bláfell býður upp á ekta íslenska rétti, matreidda með ferskum hráefnum sem sótt er í nærumhverfi hótelsins. Kjötið kemur frá nærliggjandi bæjum, fiskurinn frá framleiðendum í Fjarðabyggð og grænmetið og kartöflur ofan af Héraði sem og frá Hornafirði.

Hér eru nokkrar athugasemdir frá gestum okkar, sem gefa innsýn í hugsanir þeirra sem hafa notið dvalarinnar hjá okkur.

Áhugavert í Breiðdal og nágrenni

blel

Fossinn Beljandi
Skammt fyrir utan bæinn Brekkuborg er fossinn Beljandi í Breiðdalsá. Raunar eru fossarnir tveir, ytri og innri, og samnefndir hylir við. Þetta er mjög fagurt svæði og skemmtilegt til útivistar.

blle

Breiðdalseldstöðin
Breiðdalseldisstöð er forn megineldstöð í Breiðdal og Berufirði, vettvangur ítarlegra rannsókna enska jarðfræðingsins Georges D.L. Walker, ásamt öðrum slíkum á Austurlandi. Þessi eldstöð er prýdd stórum ríólít-innskotum með tignarlegum og sérstæðum tindum, Flögutindi í Breiðdal, Smátindum, Röndólfi, Slötti og Stöng. Suðurhlíðar Breiðdals eru sérstaklega litskrúðugar og berglögin óregluleg, sett miklum gjóskumyndunum.

eldstodin-east-is

Breiðdalsá
Breiðdalsá er ákaflega falleg 6 – 8 stanga laxveiðiá í um 615 km fjarlægð frá Reykjavík og í um 80 km fjarlægð frá Egisstöðum.

Áin á upptök sín til fjalla þar sem lækir tínast saman og verður svo til þar sem Tinnudalsá, Suðurdalssá, og Norðurdalsá renna saman, og rennur hún svo til sjávar hjá Breiðdalsvík. Umhverfi Breiðdalsár er stórbrotið og sagt er að menn veiði óvíða í eins fallegri á en Breiðdalsá.

meleyri-2

Jórvíkurskógur
Jórvík í Breiðdal er eyðibýli með stórum kjarrlendum. Um 600 ha eru í eigu Skógræktarinnar en skógurinn var friðaður 1960. Hér er einn af fáum fundarstöðum blæaspar á landinu og eru hæstu trén um 4 m. Landið er annars að mestu vaxið náttúrulegu birkikjarri en gróðursettum skógi að hluta. Svæðið er opið almenningi og merkt gönguleið er frá Jórvík yfir í Norðurdal.

streitishvarf-2
Flögufoss Waterfall

Flögufoss Waterfall
Stutt gönguferð frá aðalveginum í Breiðdalsvík sýnir tignarlegan foss Flögufoss. Þar rennur Flöguá niður af stórbrotnum klettabrúnum í einu falli, yfir 60 metra (197 fet) á hæð.

Flogufoss_Oost_IJsland_1

Ferðir

Ísland er stórkostlegt land með einstöku landslagi, náttúruperlum og líflegri menningu. Hér eru nokkrir áhugaverðir staðir og afþreying á Íslandi sem þú verður að heimsækja:

@hotelbreiddalsvik