Sagan hans Friðriks
Friðrik Árnason, frá Njarðvík til Breiðdalsvíkur
Friðrik Árnason fæddist í Reykjavík 6. apríl 1977 en ólst upp í Njarðvík. Hann gekk í Njarðvíkurskóla, útskrifaðist þaðan 1993, og stundaði síðan nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Eftir nokkur ár í atvinnulífinu fór Friðrik til Danmerkur og útskrifaðist með BS-gráðu í Value Chain Management frá VIA University vorið 2009.
Friðrik hefur verið viðloðandi ferðaþjónustu frá árinu 1991, þegar hann var aðeins 13 ára. Hann starfaði við gistiþjónustu í Njarðvíkurskóla og hafði umsjón með bílaleigunni Geysi á sumrum. Árið 1994 starfaði hann við Hótel Kristínu í Njarðvík og stýrði hótelinu sjálfur, og árið 2000 hóf hann störf hjá ferðaskipuleggjandanum Geysi.
Hótel Breiðdalsvík, frá 2009
Árið 2009 keypti Friðrik Hótel Bláfell á Breiðdalsvík, ásamt þáverandi eiginkonu sinni: „Þar hef ég lagt í mikla uppbyggingu á undanförnum árum. Hótelið er nú með rúmlega 40 herbergi, veitingastað, kjörbúð og kaffihús, ásamt íbúðum og 400 manna ráðstefnu- og veitingasal.“
Haustið 2015 keypti Friðrik svo ferðaskrifstofuna Travel East Iceland og rekur hana samhliða hótelinu. Friðrik starfar einnig sem markaðsstjóri SBK í Keflavík og er meðlimur í Íslenska afþreyingarfélaginu.
Áhugamál
Áhugamál Friðriks eru börnin hans, fjölskyldan, ferðaþjónustan, ferðalög, útivera og ljósmyndun. „Ferðaþjónustan er mínar ær og kýr enda byrjaði ég 13 ára að vinna í þessum geira og var kominn með eigin rekstur tveimur árum síðar.“
Friðrik á börnin Sindra (f. 2000), Loga (f. 2006) og Emilíu Glóð (f. 2008). Hann tekur ljósmyndir af náttúrunni og hefur áhuga á björgunarsveitastörfum, pabbi hans var einmitt formaður Hjálparsveitar skáta í Njarðvík í ríflega áratug.