Rými til að hugsa, vinna saman og njóta tímans
Á Hótel Breiðdalsvík fær hópurinn rólegt og persónulegt umhverfi þar sem auðvelt er að einbeita sér, eiga góð samtöl og njóta tímans saman.
Gisting, matur, fundaraðstaða, setustofa með arni og útispa á einum stað, í litlu sjávarþorpi á Austurlandi þar sem fjöll, fossar og strönd eru rétt við dyrnar.

Hótelið sem bækistöð fyrir hópinn
Hótelið er opið daglega frá 1. maí til 31. október. Hópadvalir og viðburðir utan hefðbundins opnunartíma eru mögulegir eftir samkomulagi.
Fundir, starfsdagar og stefnumótun
Þrír pakkar sem dæmi um það sem við setjum saman fyrir hópa. Smelltu á blaðið til að opna það og stækka.
Hvað er langt að koma?
Flug frá Reykjavík til Egilsstaða tekur um klukkustund og þaðan er stutt til okkar.
Akstursleiðir eftir hringveginum. Að vetri getur Breiðdalsheiði verið lokuð og þá er ekið um firðina.
Þegar hópurinn þarf bæði vinnurými og tíma saman
Góð hópdvöl snýst sjaldnast eingöngu um fundinn sjálfan. Hér er hægt að skipta á milli formlegrar dagskrár, samtala í minni hópum, máltíða og afslöppunar.

Fundaraðstaða
Fundarherbergið tekur allt að 40 manns í sæti og hefur dagsbirtu. Wi-Fi, skjávarpi, stór sjónvarpsskjár, hljóðkerfi og mismunandi uppsetningar eftir því hvernig hópurinn vill vinna. Veitingasalurinn tekur allt að 100 gesti og nýtist líka í dagskrá hópsins.
Setustofan með arni
Setustofan og bókasafnið eru hjarta hótelsins. Þar sest hópurinn saman eftir fund, vinnur í minni hópum eða slakar á við arininn.
Útispa
Heitur pottur, kaldur pottur og finnsk sauna. Gott til að hægja á eftir fundardag eða göngu. Aðgangur fyrir hópa er skipulagður eftir samkomulagi.
Maturinn á Bláfelli
Veitingar fyrir hópa eru settar saman eftir stærð og dagskrá. Þegar hann er í boði fáum við ferskan fisk frá smábátunum hér í þorpinu.
Fyrir hvaða hópa?
Stjórnendadagar og stefnumótun
Breiðdalsvík gefur stjórnendahópum rými til að einbeita sér, vinna saman og ræða málin í öðru umhverfi en venjulega. Dagskráin getur blandast saman við máltíðir, göngur, spa og óformleg samtöl.
Fundir, vinnustofur og námskeið
Fyrir minni og meðalstóra hópa er hægt að setja saman fundaraðstöðu, veitingar og gistingu eftir þörfum.
Fyrirtækjaferðir og hópdvalir
Hér getur hópurinn verið saman án þess að öll dagskráin þurfi að vera formleg. Gönguferð, kvöldverður, stund við arininn eða spa geta orðið jafn mikilvægur hluti af ferðinni og fundurinn.
Fjölskyldur og vinahópar
Hótelið hentar einnig vel fyrir fjölskyldumót, vinahópa og aðra hópa sem vilja dvelja saman og nota Breiðdalsvík sem bækistöð fyrir Austurland.
Brúðkaup og einkaviðburðir
Fyrir brúðkaup, afmæli og stærri samkomur er hægt að tengja gistingu og veitingar á hótelinu við stærri viðburðarrými í Frystihúsinu beint á móti.
Frystihúsið fyrir stærri fundi og viðburði
Beint á móti hótelinu. Fyrrverandi frystihús sem er í dag 450 fermetra fundar, veislu og viðburðarrými.

Náttúran byrjar við þorpið
Þegar gengið er út af hótelinu blasa fjöllin við í allar áttir. Í nágrenninu eru gönguleiðir, skóglendi, lækir, fossar og svarta sandströndin Meleyri.
Stutt ganga fyrir morgunmat eða eftir fund getur verið nóg til að breyta tempóinu.
Bætið upplifun við dvölina
Eftir árstíma, áhuga hópsins og framboði.
Norðurljós
Fossar og gönguleiðir
Heimsókn á Beljandi
Hestaferðir
Meleyri og strandlengjan
Ferðir um AusturlandSvona getur dvölin litið út
Engir tveir hópar þurfa sömu dagskrá. Það getur verið:
Fundur hluta úr degi með kaffi eða máltíð og tíma fyrir samtal eða göngu.
Fundaraðstaða yfir daginn, máltíðir eftir þörfum og kvöldstund saman á hótelinu.
Fundur ásamt einni eða fleiri nóttum, kvöldverði og tíma til að njóta spa og umhverfisins.
Nokkrir dagar þar sem fundum, stefnumótun, máltíðum, náttúru og samveru er fléttað saman.
Við setjum fyrirkomulagið saman út frá hópnum, dagsetningum og markmiði ferðarinnar.
Minni hópur sem vill meira næði?
Bjálki er 11 herbergja gistihús í Breiðdalsvík sem hægt er að leigja sem eina heild, með gistingu fyrir 22. Eigið hús, setustofa með arni, eldhús og útispa.
Hentar vel minni stjórnendahópum, fjölskyldum og vinahópum sem vilja einkarými en samt vera nálægt hótelinu og annarri þjónustu í þorpinu.

Af hverju Breiðdalsvík?
Fimm ástæður sem hópar nefna oftast eftir dvölina.
Segðu okkur frá hópnum
Þið þurfið ekki að vera komin með fullmótaða dagskrá. Segið okkur hversu margir eru í hópnum, hvaða dagsetningar koma til greina, hvort þið þurfið gistingu, hvers konar fund eða viðburð þið eruð að skipuleggja og hvað þið viljið fá út úr dvölinni. Við förum yfir möguleikana og hjálpum ykkur að móta dvöl sem hentar.























