Veitingastaður

VEITINGASTAÐUR

Bláfell

Ekta austfirsk matargerð úr ferskum hráefnum

Veitingastaðurinn Bláfell er stoltur af því að bjóða upp á ekta íslenska rétti, matreidda með ferskum hráefnum sem sótt eru í nærumhverfi hótelsins.

Kjötið kemur frá nærliggjandi bæjum, fiskurinn frá framleiðendum í Fjarðabyggð og grænmetið og kartöflur ofan af Héraði sem og frá Hornafirði.

Bláfell er opinn fyrir bæði gesti hótelsins og aðra. Ef þú átt bara leið hjá er tilvalið að koma við í rjúkandi ferskt kaffi og kökusneið.

Austfirskur matur á Bláfell veitingastað á Hótel Breiðdalsvík Ferskt grænmeti og íslenskir réttir á Bláfell
Morgunverðarhlaðborð á Bláfelli
Morgunverður
Morgunverður á Bláfelli

Dagurinn byrjar vel með hlaðborði þar sem ferskleikinn er í fyrirrúmi. Nýbakað brauð, heimalagað bakkelsi, austfirskt álegg, ostar, skyr, ávextir og nýlagað kaffi. Að sjálfsögðu er lýsi á boðstólum, ekta íslensk hefð sem kemur þér af stað fyrir daginn í Breiðdal.

Vel nærð leggur þú af stað í ævintýri dagsins, hvort sem það er gönguferð að Flögufossi eða rólegur morgunn við fjörðinn.

OPNUNARTÍMI
Morgunverður alla morgna
07:30 – 10:00
Breakfast at Bláfell. Start your day with a generous spread where freshness comes first. Freshly baked bread, homemade pastries, local East Iceland cold cuts, cheeses, skyr, fruit and freshly brewed coffee. You will also find lýsi, the Icelandic cod liver oil that is a true local tradition. Served every morning from 07:30 to 10:00.
Nýbakað brauð Álegg, ostar og grænmeti Epli og ferskir ávextir Lýsi, ekta íslensk hefð
OPNUNARTÍMAR

Velkomin í Bláfell

Morgunverður 07:30 – 10:00
Hádegisverður 12:00 – 14:00
Kvöldverður 18:00 – 21:00
HÓPAR OG VIÐBURÐIR

Hádegisverður fyrir hópa

Við bjóðum upp á sérstakan hádegisverð fyrir hópa, fyrirfram bókaður og sniðinn að ykkar þörfum.

Tilvalið fyrir starfsmannahópa, ráðstefnur, ferðahópa eða fjölskylduveislur. Hafðu samband með nokkurra daga fyrirvara og við sníðum matseðilinn að ykkur.

Bóka fyrir hóp →

Sjá matseðilinn

Skoðaðu hvað er á boðstólum hjá Bláfell, morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.

Skoða matseðil →
💬