Veitingastaður

Við erum stolt af því að bjóða upp á íslenska matargerð eins og hún gerist best, matreidda með ferskum hráefnum úr nærumhverfi okkar. Við bjóðum einnig upp á afbragðsgóðan hefðbundin hádegismat fyrir einstaklinga og hópa. Ef þú átt bara leið hjá er tilvalið að koma við í rjúkandi ferkst kaffi og kökusneið.

Veitingastaðurinn Bláfell býður upp á ekta íslenska rétti, matreidda með ferskum hráefnum sem sótt er í nærumhverfi hótelsins. Kjötið kemur frá nærliggjandi bæjum, fiskurinn frá framleiðendum í Fjarðabyggð og grænmetið og kartöflur ofan af Héraði sem og frá Hornafirði.

Ráðstefnur, Fundir eða hvers kyns viðburðir

Ertu þreytt(ur) á hefðbundnum ráðstefnustöðum? Þá er upplagt að halda næstu ráðstefnu, fund hópefli eða viðburð á Breiðdalsvík. Við bjóðum upp á einstaka staðsetningu sem veitir innblástur og er tilvalin fyrir hverskyns hópefli, án truflana.

Við bjóðum upp á fundarsali með aðstöðu fyrir 20-100 manns. Veitingastaðurinn okkar tekur 100 manns í sæti og minni fundarsalurinn okkar allt að 40 manns í sæti.

Aðstaðan

Á Hótel Breiðdalsvík er fyrirmyndar aðstaða en þar má meðal annars nefna frí þráðlaus nettenging, næg bílastæði, veitingastaður, notaleg setustofa og sauna í finnskum stíl.

Setustofan

Gestir hótelsins geta notið þess að slaka á afslöppuðu umhverfi setustofunnar okkar, með snarkið í arninum í bakgrunninum, og líta í bók úr veglegu bókasafni okkar eða njóta drykkja af barnum.

Finnsk Sauna

Eftir langan dag er ekkert betra til að slaka á þreyttum vöfðum en að njóta þess að fara í finnska sauna, sem allir gestir hafa aðgang að. Opin alla daga frá 17:00 – 22:00 eða eftir óskum.